28.10.2011 12:24:03 / kotasaela
Jæja þá er þessi mánuður að verða búin og nýr tekur við....

Við í kotasælubekknum vorum að kveðja einn nemanda úr bekknum okkar í dag hana Evu Mariu en hún er að flytja til Noregs.. við óskum henni góðs gengis í nýjum ævintýrum en auðvitað munum við sakna hennar mjööööög
Vikan er búin að vera frábær hjá okkar eftir vetrarfrí...
»
17.10.2011 14:15:41 / kotasaela
Góðan daginn !! Þá er loksins búið að virkja góðu síðuna okkar aftur og ég ætla að vera dugleg að setja fréttir af okkur og myndir af því sem við erum að gera á þessu skólaári...
núna er ég búin að setna myndir inn á myndasöfn undir linknum 5. bekkur
sæl að sinni Svanhvít Y.
»
24.08.2009 00:14:33 / kotasaela

Núna er nýtt skólaár að hefjast hjá okkur og eiga nemendur að mæta með foreldrum sínum í viðtal á uppgefnum tíma mánudaginn 24. og þriðjudaginn 25. ágúst.
Skólastarf hefst á Miðvikudaginn 26. ágúst samkvæmt stundartöflu.

Það verður gaman að hittast aftur eftir sumarfrí.
»
20.05.2009 16:26:43 / kotasaela
María: Ég er að fljúga til Íslands, ég á heima þar.
Tumi: Ég er að fljúga með Kúskó til Vestmannaeyja.
Hlynur: Ég myndi fljúga til Spánar og leika á ströndinni.
Eva: Ég mundi fljúga til útlanda og fara í sólbað.
Rafal: Fljúga til póllands og ég get hitt frænku mína.
Júlía: Ég myndi fljúga til Póllands til ömmu og afa.
Stefán: Ef ég gæti flogið mundi ég fljúga til Serbíu.
Sesselja: Ég ætla að fljúga til Vestmannaeyja.
Jóhanna: Ég flýg og ég flýg, það er svo gaman að fljúga,,mamma,, til Vestmannaeyja.
Sjöfn: Ef ég gæti flogið myndi ég fljúga til Afríku og skoða dýrin í Afríku útaf það er svo gaman að skoða dýrin og leika við þau.
»
20.05.2009 15:56:20 / kotasaela
í dag fóru nemendur í 1 - 4 bekk í ratleik. Þeim var skipt upp í 7. hópa og fékk hver hópur nýja vísbendingu á hverjum stað.
Staðrnir sem við fórum á voru:
- Búðin
- Bókasafnið
- Fjaran (hjá Álfahúsinu)
- Randolfshúsið
- Sporður
- Steinasafnið
- Sjónminjasafnið
- Landsbankinn var endastöð allra og starfsfólkið þar færði öllum nemendum ávaxtadrykk í lokin.

Myndir af deginum eru í myndasöfn, undir linknum:
Heilsudagur 2. bekkur
Kv Svanhvít Y.
»
07.05.2009 23:46:40 / kotasaela
Þetta var spurning dagsins,,, krakkarnir skrifuðu og teiknuðu mynd af því sem þeim finnst skemmtilegast að gera...
´ síðan var haldin kynning á því. Búin voru til nafnspjöld í tölvutíma þar áttu þau að ýminda sér að þau væru að opna fyrirtæki og auðvitað vantaði nafnspjöld
»
05.05.2009 14:11:41 / kotasaela
Í dag fórum við 1. og 2. bekkur í vettvangsferð í leit af óskasteinum. Við fræddumst um steina og hvaðan þeir koma eða hvernig þeir verða til. Krakkarnir bjuggu síðan til Óskasteinabók við steinasafnið.
Að lokum fræddumst við um mörgæsir og þeirra lifnaðarhætti, enduðum daginn á að horfa Happy feet. Myndir af deginum eru inni á myndasöfn undir Óskasteinar.
»
17.04.2009 18:14:08 / kotasaela

loksins eru komnar myndir inn hjá okkur á síðunni ég merkti möppuna 2008 - 2009
kv svanhvít
»
25.03.2009 13:32:50 / kotasaela
það er eitthvað erfitt að koma myndum inn í tölvuna hjá mér, það er verið að vinna í því að laga það svo hægt sé að sýna ykkur foreldrar góðir myndir af börnunum ykkar í leik og starfi. kv.Svanhvít
»
24.03.2009 12:22:05 / kotasaela
FUNDUR Í KVÖLD
Í dag þriðjudaginn 24. mars kl. 17:00 - 18:30, verður haldinn foreldrafundur á sal skólans þar sem fjallað verður um eina útbreiddustu og illviðráðanlegustu tegund eineltis sem þekkist í dag, en það er svokallað "rafrænt einelti". Það er því miður sorgleg staðreynd að skeytasendingar sem ganga á milli barna og unglinga í dag með rafrænum hætti, bæði í gegnum tölvur og gsm-síma, eru margar hverjar afar neikvæðar og ljótar og í sumum tilfellum er hreint og klárt um alvarlegar árásir á aðra að ræða. Slíkar skeytasendingar geta dregið dilk á eftir sér, ekki aðeins fyrir fórnarlambið sem líður illa á eftir, heldur einnig fyrir sendandann sem gæti þurft að sæta ábyrgð á sínum sendingum.
mætum og stöndum vörð um börnin okkar
Bestu kveðjur frá skólanum
»
26.02.2009 14:17:27 / kotasaela
Nemendur mæta með foreldrum/foreldri sínu/m á eftirtöldum tímum....
Stefán kl: 8:15
Sjöfn kl: 8:30
Rafal kl: 9:00
Nicole kl: 9:15
Eva kl: 9:30
Ísabella kl: 9:45
Hlynur kl: 10:00
Tumi kl: 10:15
Bára kl: 10:30
Jóhanna kl: 10:45
Sesselja kl: 11:00
Magdalena kl: 11:15
María kl: 11:30
Sjáumst hress á morgun kv Svanhvít
»
22.02.2009 14:40:47 / kotasaela
Á Miðvikudaginn 25. feb verður ekki skóli vegna öskudagssins,,
Hinsvegar verðum við kennararnir að vinna og öllum er velkomið að koma og syngja fyrir okkur og fá góðgæti.
Á Föstudaginn 27. feb er foreldradagur og er því ekki hefðbundinn kennsludagur. Nemendur mæta til viðtals á sínum tíma þann dag með foreldrum sínum.
»
22.02.2009 14:37:06 / kotasaela
Þessi önn fer senn að ljúka með foreldraviðtölum á Föstudaginn 27. feb n.k. Viðtalstímar nemenda verða sendir út í tölvupósti, ásamt því að vera birtir hér á síðunni. 

»
15.01.2009 14:19:51 / kotasaela
Þá er nýtt ár að hefjast og skólinn hafinn. við erum að byrja setja okkur í gírinn hér í Kotasælubekknum. 1. Bekkur er kominn til að vinna með okkur á nýju ári. Við höfum ákveðið að hafa samkennslu hjá 1. og 2. bekk. Krakkarnir eru mjög ánægð með þessa breytingu og bjóðum við krökkunum í 1. bekk velkominn til okkar.
Bekkjunum er skipt upp í tvo hópa og þeir heita:
Sniglarnir og Skjaldbökurnar. Þau eru mjög ánægð með þetta það eru þá 10 og 11 krakkar saman í hvorum hóp. Þessir hópar fara í leikfimi, heimilisfræði og smíðar saman. Samkennslan kemur sér vel fyrir alla einnig félagslega. 
Það eru komnar nýjar myndir inn af nemendunum á linkinn saumar og listir
»
Síður:
1 2 3 4